Þá hefur mér tekist að búa til einhverskonar blog dót. Kann reyndar ekkert á þetta ennþá. Þetta er þriðji dagurinn minn í Shanghai, og líklega sá síðasti. Við ætlum svo til Ningbo í fyrramálið. Ég er alveg að fíla Shanghai, fyrir utan það hvað það er fáránlega mikið af fólki hérna. Og þá sérstaklega kínverjum, þeir eru allstaðar. Furðulegt. Það eru reyndar frekar fáir vesturlandabúar hérna sem ég hef séð, kannski týnast þeir bara innan um alla kínverjanna. Ég er ekki enn búin að venjast því hversu mikið er glápt á mann. Það er rosalegt. Mér líður eins og sirkúsfríki þegar ég labba um göturnar. Spurning hvort maður ætti að fara að rukka fólk fyrir að stara á mann.
Það tala líka frekar fáir ensku hérna, litla kínverskukunáttan kemur þá að góðum notum :)
Núna erum við að fara á jazz klúbb held ég, það verður örugglega næs. Ég skrifa fleiri furðufréttir seinna.
3 comments:
En flott hja þér að stofna bloggsíðu! Ég verð örugglega á henni alla daga... Kær kveðja, mamma.
Sjitt hvað þú ert leim gella að blogga. ojjj, samt sæt.
Gott að heyra að það sé gaman hjá þér... Passaðu þig að vera ekki með eldspýtur nálægt kínverjunum.... þeir eiga það til að springa !
Kv. Helgi og Kittý
Post a Comment