Thursday, September 11, 2008

Ningbo

Núna er ég búin að vera 3 daga í nýju heimaborg minni, Ningbo. Við tókum rútu frá Shanghai, tók um 2,5 klst og var einstaklega súrefnislaus. En ég fékk að fara yfir stærstu brú í heimi! Sumir segja víst að Ningbo sé fallegasta borg Kína. Ég hef nú ekki séð mikið af henni enn, en það sem ég hef séð lítur bara vel út. Háskólinn sem við erum í er frekar langt frá miðbænum. Til að komast niður í bæ þarf maður að leggja á sig þrönga, súrefnislausa og mjög heita strætóferð í svona tuttugu mínútur. Strætóarnir eru alltaf frekar troðnir, en síðasta ferðin á kvöldin er víst verst, þegar þeir troða bara endalaust inn í strætóinn. Þetta á nú eflaust eftir að lagast þegar þessi hiti fer að fara. Það er búið að vera alveg gífurlega heitt undanfarna daga. Rakinn er líka svo mikill, sem ég Íslendingurinn á erfitt með að venjast. Þá er gott að hafa herbergi með svaka loftkælingu :)
Það þykir voða fínt hjá Kínverjum að vera hvítur. Þess vegna höfum við átt í erfiðleikum með að finna rakakrem og snirtivörur án einhverskonar hvítunarefna. Það þykir líka einstaklega hallæris legt að vera í sólbaði. Ég meina afhverju mundi maður vilja skemma svona fallega hvíta húð með sólinni?
Við gistum öll á hóteli og herbergið mitt er bara rosa fínt. Ég er eiginlega með of mikið af húsgögnum. Svo er ég með sjónvarp, með svona 300 kínverskum rásum. Annars reyni ég að vera sem minnst inni í herberginu mínu, það er frekar einmannalegt. Ég á nú samt eftir að gera það aðeins heimilislegra, setja upp nokkrar myndir af fjölskyldu og vinum :)
Miðbær Ningbo hefur allt sem þarf. Mætti reyndar vera minna af vestrænu drasli eins og McDonalds og KFC. Starbucks er líka hérna, ef maður vill fá sér kaffi. Kínverjar drekka ekki kaffi. Ég keypti mér skó á prúttmarkaði í gær, reyndar ótrúlegt að þeir hafi verið til í stærra en 35. Hún vildi selja mér þá á 2000 ísl kr. Ég náði þeim á 600 kr. Geðveikt stolt.
Ég er víst að fara í eitthvað stöðupróf á morgun. Annars byrjar skólinn ekki fyrr en 17. sept. Best að reyna að læra...

1 comment:

Ivar_Orn said...

hæhæ, flott hjá þér að blogga og láta okkur hérna heima öfunda þig ;) Ertu ekki búinn að búa til svona kínverskt altari fyrir sagnfræði myndina af okkur :) hún slær pottþétt í gegn þarna í Nindongdeng :p

Haltu áfram að blogga...pís át

Kv.
Ívar og Guffa