Tuesday, December 30, 2008

Brúðkaup og hryðjuverk

Þessa dagana er ég að ná mér eftir stanslaust party síðustu 2 vikur. Við byrjuðum á því að fara í kínverskt brúðkaup hjá vinafólki. Það var ótrúlega spes. Það var haldið í svaka flottum og hallærislega skreyttum sal. Allt í blöðrum og sápukúlum. Þetta var eins og einhver sýning frekar en brúðkaup. Þegar brúðhjónin gengu upp á svið var lagið O Fortuna spilað undir. Svona eins og eitthvað hræðilegt væri að fara að gerast. Svo voru allskonar misskemmtileg kínversk popplög spiluð. Við fengum fullt af góðum mat og áfengi og ókeypis gistingu á hóteli. Það er mjög fínt að hafa útlendinga sem gesti í brúðkaupinu sínu, sérstaklega ef þeir fara uppá svið og syngja framandi lag eins og Krummi svaf í klettagjá. Við vorum hrókur alls fagnaðar og allir vildu skála með okkur. Og þegar Kínverjar skála þá er það alltaf skál í botn. Ég skil alltaf betur og betur afhverju bjórinn er bara 3%. Eftir brúðkaupið fórum við svo á KTV (karaoke). Ég lofaði sjálfri mér að fara aldrei nokkurn tíma í karaoke, en það var alveg ótrúlega skemmtilegt. Kannski hafði áfengið eitthvað að segja. Við vorum öll meira og minna á skallanum. Daginn eftir fórum við svo til Shanghai þar sem við tókum svaka afmælis-djamm helgi. Fórum líka í langþráða IKEA ferð til að kaupa piparkökur og kjötbollur. En akkúrat þá þurfti endilega að berast sprengjuhótun og það þurfti að rýma alla fjandans búðina og við gátum ekkert keypt ☹ Svo fannst auðvitað engin sprengja. En það hefði verið svalt hefðum við rétt sloppið frá sprengjuárás. Ég er að pæla í að segja öllum það bara. Ég rétt slapp frá hryðjuverkaárás í IKEA. Hversu töff er það?
Strax eftir Shanghai tóku við strangar söng æfingar (alveg 4 klukkutímar) fyrir hæfileikakeppni erlendra nema í skólanum, haldin á Þorláksmessu. Við sungum Beijing huanying ni sem er án efa erfiðasta kínverska lag í heimi. Við vorum í svaka flottum traditional kínverskum klæðnaði og slógum í gegn með falska englasöngnum okkar. Lentum í öðru sæti! Til að halda uppá það var auðvitað farið í bæinn og keyptur bjór fyrir öll þessi 200 yuan sem við unnum.
Á Aðfangadag, Jóladag og annan í jólum fórum við voða fínt út að borða og lifðum hátt, líkt og það væri enginn morgundagur. Samt kom eiginlega alltaf morgundagur. Og þá var maður ekki alltaf jafn hress eftir alla gleðina kvöldið áður. En þá var bara að drífa sig í sturtu og aftur út! ☺ Jólin hafa semsagt einkennst af mikilli gleði hjá okkur. Við meira að segja skrópuðum í skólann. Ekki segja neinum. Í næstu viku eru prófin. Þau verða eitthvað skrautleg held ég. Sérstaklega ef við förum til Shanghai aftur yfir áramótin, eins og pælingin er í dag. Það yrði æðislegt að eyða áramótunum á eftstu hæð í flottasta turninum í Shanghai ☺

Sunday, November 23, 2008

Addressan mín

(nafnið mitt efst)
PO. Box 59, International College, Ningbo University, Ningbo, 315211, 
P.R. China 

Friday, November 21, 2008

Shanghai

Síðustu helgi fór ég til Shanghai. Það var æðislegt. Fór í HM og Zöru og keypti hlýjar peysur fyrir veturinn. Því miður kostar ein peysa núna svona 8000 kr. Það hefur verið virkilega kalt hérna í vikunni. Alveg niður í frostmark. Svo kemur rakinn og magnar allan kuldann upp. Hvorki skólinn né hótelið er hitað upp og veggirnir eru mjög þunnir. Maður verður sko að mæta kappklæddur í tíma. Sem betur fer er ég með loftkælingu inni hjá mér sem getur hitað upp herbergið. Ég keypti mér líka rafmagnsteppi þannig að ég er nokkuð vel sett bara :)
Það var mjög gaman í Shanghai, við fórum bara tvær saman en kynntumst fullt af fólki á hostelinu. Shanghai var alveg pökkuð af fólki. Við höfðum eiginlega ekki efni á því að djamma því það er orðið svo dýrt. Síðasta daginn var veskinu mínu stolið :( það var ekki eins gaman. Allur peningurinn minn og öll kort. Sem betur fer voru bara svona 500 yuan í veskinu, sem er svona 10.000 kr. Hefði getað verið verra. Vegabréfinu var amk ekki stolið. Bara svo óþægilegt að vera ekki með neinn pening og geta heldur ekki tekið út pening í hraðbanka. Ég læt senda til mín ný kort sem ættu að koma í desember. Þetta reddast þangað til. Mér ætti allavega ekki að verða kalt í vetur :)

Wednesday, November 12, 2008

Economy BOOM

Jeij ég er í Stúdentablaðinu, bara orðin fræg :)
Fyrsta spurningin sem ég fæ þegar ég segist vera frá Íslandi er hvort það sé ekki rosalega kalt. Enda segir það sig sjálft. Það hlýtur að vera rosa kalt á Íslandi. Þegar ég segi þeim að það sé mun kaldara í Kína verða þeir voða hissa. Sumir halda líka að við séum eskimóar. Ég reyni að leiðrétta það eins og ég get. En stundum er skemmtilegra að segjast bara vera eskimói sem býr við stöðuga hættu á að vera étinn af the Killer-Penguins. Næsta spurning sem ég fæ er hvort ég hafi það ekki rosalega slæmt núna þegar heimalandið mitt er að fara á hausinn. Þeim finnst að Ísland ætti bara að taka upp kínverska Yuan-ið. Það er nú svo stöðugt. Þetta er svona um það bil það eina sem margir hérna vita um Ísland. Þar er kalt og efnahagurinn í skralli.
Það er enn verið að biðja okkur um að sitja fyrir á myndum með einhverjum random Kínverjum sem við hittum úti á götu. Það er alveg ótrúlegt. Við erum komin í nokkuð mörg kínversk fjölskyldualbúmin.
Ég fór í pósthúsið í gær til að senda pakka heim. Það var ein kona að vinna og brjálað að gera. Ég stóð í svona korter beint fyrir framan konuna en hún gjörsamlega ignoraði mig. Kínverjarnir ruddust bara fram fyrir mig og voru með frekju, eins og þeir gera. Sumt afgreiðslufólk reynir eins og það getur til að þurfa ekki að afgreiða útlendinga. Þau gera bara ráð fyrir því að maður tali ekki kínversku og þau kunna aldrei ensku. Alveg óþolandi. Loksins hjálpaði ein stelpa mér við að fá afgreiðslu. Enska nafnið hennar er Princess. Ensku nöfnin sem þau velja sér hérna eru alveg fáránlega fyndin. Það er mjög vinsælt að heita Apple eða Orange. Líka Prince eða Princess. Ég heyrði um einn sem heitir Bandit, einn Tiger og með mér í bekk er Dollar-Man.

Thursday, November 6, 2008

Kínverji í 2 mánuði

Jæja nú er ég búin að vera Kínverji í 2 mánuði. Það gengur bara alveg ágætlega. Það er alltaf nóg að gera hjá mér. Ég var í prófi í dag. Það hefði alveg mátt ganga betur... Það eru bara svo miklu skemmtilegri hlutir til en að læra. Svo ætlum við til Shanghai núna um helgina :) Kíkja aðeins í HM og svona. Ikea líka. Nauðsynlegt. Annars er enn voða heitt hérna. Ég held þeir séu hættir við veturinn. Í dag voru alveg um 22 gráður. Ég er alveg sátt við það, nema bara moskító flugurnar sem ætla aldrei að drullast til að drepast. Það er enn verið að bíta mig. Og ég prófaði að bíta þær bara til baka en það virkar ekki. Ég fór í sólbað um daginn. Það hefur aldrei verið glápt eins mikið á mig og þá. Allir Kínverjarnir að passa sig að halda sig í skugganum, svo ég að láta sólina skína á mig eins og einhver bjáni. Annars er ég bara orðin nokkuð vön Kínalífi. Það er alltaf verið að spurja mann sem útlending, hvort maður sé orðinn vanur lífinu í Kína. Ég er hætt að taka eftir hóruhúsum, það er kannski ágætis vísbending að ég sé orðin vön lífinu hérna. Það eru hóruhús útum allt! Alla leiðina frá háskólasvæðinu niður í bæ keyri ég framhjá hóruhúsum. Og það tekur alveg hálftíma að fara niður í bæ. Það hlýtur að vera rosaleg eftirspurn. Svo er ég líka orðin vön því að Kínverjar nota ekki klósett, heldur bara svona holur í jörðinni sem maður á að pissa í. Já það er frekar ógeðslegt. En á þeim fáu stöðum sem hafa klósett, eins og við þekkjum þau, þá vita Kínverjarnir ekki hvað þeir eiga að gera og standa þess vegna bara uppi á klósettsetunni og beygja sig niður. Dont ask. Ég skil þetta ekki.
Ég er hins vegar ekki enn vön stólunum hérna. Þeir eru voða hrifnir af kollum. Ég finn enga stóla með baki og er þess vegna að drepast í bakinu. Meira að segja í skólanum þarf maður að sitja á kolli og líka á flestum veitingastöðum sem ég fer á.  Það er frekar mjög óþægilegt já. Rúmin eru líka eins og grjót. En það er víst venjan hérna. Maður venst því líka strax.

Wednesday, October 29, 2008

Ningbo líf

Það er mjög næs að búa á hóteli. Á hverjum degi kemur cleaning lady og tekur ruslið hjá mér, svo skiptir hún á rúmum og þrífur herbergið einu sinni í viku. Við erum orðnar svaka góðar vinkonur. Hún segir nihao, þá segi ég nihao. Ég skil voða lítið annað sem hún segir en það er pottþétt eitthvað svona sem vinkonur segja. Stundum hjálpa ég henni meira að segja að skipta á rúminu mínu. Í síðustu viku sagði hún að baðherbergið mitt væri rosa hreint og fínt.
Ég er mjög heppin að búa ekki á kínversku heimavistinni. Þar eru þau 4-6 saman í herbergi, í kojum, og það er útgöngubann öll kvöld eftir kl 22:00. Meira að segja um helgar. Svo er slökkt fyrir rafmagnið hjá þeim á miðnætti, svo þau neyðist til að fara að sofa. Það er ekkert skrítið að Kínverjar fari svona snemma að sofa og vakni kl 6. Það er ótrúlegt að hafa svona strangar reglur á heimavist í háskóla þar sem fullorðið fólk býr.
Það eru 30.000 manns í Ningbo háskóla. Háskólasvæðið er rosalega stórt og ég er ennþá mjög áttavillt. Það er mjög mikið af allskonar íþróttavöllum hérna og það virðist vera lögð mikil áhersla á íþróttaiðkun. Í staðinn fyrir að kíkja á bar eða kaffihús á kvöldin fara allir út á íþróttavöll. Þar er sko djammið. Samt bara til 22 auðvitað.
Kínverskt samfélag í dag er ennþá frekar gamaldags. Kynlíf fyrir hjónaband er illa séð, ungt fólk á að einbeita sér að menntun, finna sér svo maka, gifta sig og eignast eina barnið sem þeim er leyft að eiga. Vinahópum hérna er alveg skipt í stráka og stelpur. Öll samskipti þar á milli eru svona eins og hjá unglingum. Strákarnir þora lítið að tala við stelpurnar og stelpurnar flissa.

Friday, October 17, 2008

Communication breakdown

Ég fékk skemmtilegt símtal uppá herbergi í gær. Þetta samtal var mjög lýsandi fyrir öll mín samskipti við hótel staffið. Það var einhvern veginn svona:
Ég: Nihao
Einhver: Nihao (og svo var talað mjög hratt á kínversku)
Ég: Shenme? Do you speak english?
Einhver: You pay now
Ég: What, who is this?
Einhver: Yes you pay now
Ég: Pay what, who is this?
Einhver: This is front desk, you pay now!
Ég: Pay what?
Einhver: You pay room fee
Ég: What? How much?
Einhver: 580 Kuai. You pay now yes
Ég: No I paid yesterday
Einhver: Yes you pay now. 580 Kuai.
Ég: No I paid yesterday. Zuotian! (yesterday)
Einhver: Ahh zuotian?
Ég: Dui dui! (yes)
Einhver: Ahh ok. Bye bye!

Wednesday, October 8, 2008

Helvítis gengi

Ég þarf að borga leiguna á hótelinu í dag. Í síðasta mánuði var hún um 20.000, núna er hún 36.000... Ég vil helst ekki taka neinn pening úr hraðbanka þessa dagana, ég er að borga morðfjár fyrir nokkur yuan. Svo virðist gengið hjá Visa og Mastercard vera mun hærra en hjá íslensku bönkunum. Yuan er í kringum 16 krónur á google, en hjá Visa virðist það vera um 25 krónur. Ég veit ekkert afhverju...
Ég lifi bara á vatni og núðlum

Monday, October 6, 2008

Kaffi...

Ég hef þurft að drekka instant kaffi núna í 5 vikur. Æðislegt instant kaffi frá nestle með innbyggðum sykri og mjólkurdufti sem veldur nýrnasteinum. Ég fann ekkert svart kaffi fyrst en núna hef ég fundið það til allrar hamingju. Það er samt frekar óheppilegt að vera með hraðsuðuketil sem hefur engan stoppara, ef ég fylgist ekki með honum gufar allt vatnið mitt upp.
Þegar vel liggur á mér skelli ég mér í strætóferð niður í bæ og fær mér alvöru kaffi á starbucks. Fyrir einn latte á starbucks get ég keypt mér mat fyrir heila viku. Maturinn hérna er alveg æði og kostar ekki neitt. Reyndar er allt að verða dýrara og dýrara þökk sé hríðfallandi gengi krónunnar. Ég er núna að borga svona 250 krónur fyrir máltíð sem ég borgaði 200 krónur fyrir í síðasta mánuði. Rosalegt. Eins gott ég ákvað að fara í skiptinám til Kína en ekki til dæmis Danmerkur...
Ég bíð spennt eftir að sjá hvort ég fái einhvern hræðilegan sjúkdóm af öllum þessum kínverska mat sem virðist vera meira og minna eitraður. Það nýjasta er víst súkkulaðið :( 

Thursday, September 25, 2008

Það er of heitt hérna...

Það er ennþá alveg sjúklega heitt hérna í Ningbo. Held það sé svona í kringum 27 gráður yfir daginn, sem magnast svo upp í rakanum. Einhver laug því að mér að það færi að kólna um miðjan september. Iss. Ég er farin að halda að það verði bara heitara og heitara sem líður á veturinn. Ég skil ekki afhverju maður er að fara í sturtu á morgnanna, um leið og maður kemur út er maður orðinn rennandi af svita. Gaman að því.
Eftir skóla í dag fórum við nokkur niður í bæ á Xingbake (Starbucks). Við lentum í svakalegu þrumuogeldingaveðri og úrhellisrigningu. Það var alveg geggjað! Og auðvitað hlógu kínverjarnir að vitlausu útlendingunum sem voru ekki með regnhlífar.

Saturday, September 20, 2008

Prjónameistarinn Katrín

Jæja, nú er ég búin að vera 2 vikur og 2 daga í Kínalandinu. Ég er orðin alveg meistari í því að borða með prjónum. Ég get borðað allt með prjónum, meira að segja hrísgrjón! Ég vona að þið séuð stolt af mér. Þetta er sko ekkert grín. Ég keypti mér svaka flotta tölvuorðabók um daginn. Ef ég sé tákn sem ég skil ekki get ég bara vippað upp tölvuorðabókinni og teiknað táknið inn og fengið þýðingu on the spot. Ekkert smá skemmtilegt tæki. Svo eru líka skemmtilegir leikir í henni, það skemmir ekki fyrir :) Fyrsta vikan af skólanum er búin. Mér líst bara rosalega vel á þetta. Kennararnir tala auðvitað bara kínversku, það er pínu erfitt að skilja þá stundum en þetta kemur. Ég er farin að babla eitthvað sjálf. Allir að spurja hvaðan maður er, þá segi ég hátt og snjalt: Bingdao! Flestir giska fyrst á Aodalija eða Nowei.
Það er ennþá rosalega heitt. Ég forðast að fara út úr húsi í kringum hádegi. Þá er alveg ólíft. Ég vona að það fari nú að kólna. Stundum þráir maður íslenska kuldann og slabbið. Nei varla.
Fyrir utan skólann hafa verið rosalegar heræfingar undanfarna daga. Það er frekar creepy. Allir kínversku háskólanemarnir að læra að marsera í svaka búningum og gaurar í hvítum skirtum með hatt að öskra á þau. Kínverski herinn að undirbúa sig fyrir þriðju heimsstyrjöldina?

Friday, September 19, 2008

Uppgötvun

Loksins hef ég fattað afhverju kínverjar eru skáeygðir. Það er af því að það notar enginn sólgleraugu.

Monday, September 15, 2008

Djöf. Moskító

Það var ráðist á mig í nótt. Það er búið að bíta vinstri fótinn minn í hakk. Það er greinilegt að moskító flugurnar hafa haldið partý í herberginu mínu. Mig klæjar svo mikið að ég er alveg að pæla í því að láta taka löppina af. ok kannski ekki alveg.
Annars er skólinn loksins að byrja á morgun, við erum flest að fara í class B, sem hentar vel fyrir fólk á öðru ári í kínversku. Svo er viku frí í skólanum núna í lok september, þegar hann er nýbyrjaður... Furðulegt. Kannski maður kíki þá til Shanghai. Skólagjöldin hérna eru 80.000 kr. Vonandi er það ekki bara fyrir aðra önnina. Herbergisleigan er um það bil 20.000 á mánuði. En sem betur fer kostar maturinn sama og ekkert.

Ég hef tekið eftir því að kínverskar konur raka sig ekki undir höndunum. Það þykir víst fallegt að vera loðinn.

Thursday, September 11, 2008

Hérna er símanúmerið mitt í Kína: 0086 15990205091

Ningbo

Núna er ég búin að vera 3 daga í nýju heimaborg minni, Ningbo. Við tókum rútu frá Shanghai, tók um 2,5 klst og var einstaklega súrefnislaus. En ég fékk að fara yfir stærstu brú í heimi! Sumir segja víst að Ningbo sé fallegasta borg Kína. Ég hef nú ekki séð mikið af henni enn, en það sem ég hef séð lítur bara vel út. Háskólinn sem við erum í er frekar langt frá miðbænum. Til að komast niður í bæ þarf maður að leggja á sig þrönga, súrefnislausa og mjög heita strætóferð í svona tuttugu mínútur. Strætóarnir eru alltaf frekar troðnir, en síðasta ferðin á kvöldin er víst verst, þegar þeir troða bara endalaust inn í strætóinn. Þetta á nú eflaust eftir að lagast þegar þessi hiti fer að fara. Það er búið að vera alveg gífurlega heitt undanfarna daga. Rakinn er líka svo mikill, sem ég Íslendingurinn á erfitt með að venjast. Þá er gott að hafa herbergi með svaka loftkælingu :)
Það þykir voða fínt hjá Kínverjum að vera hvítur. Þess vegna höfum við átt í erfiðleikum með að finna rakakrem og snirtivörur án einhverskonar hvítunarefna. Það þykir líka einstaklega hallæris legt að vera í sólbaði. Ég meina afhverju mundi maður vilja skemma svona fallega hvíta húð með sólinni?
Við gistum öll á hóteli og herbergið mitt er bara rosa fínt. Ég er eiginlega með of mikið af húsgögnum. Svo er ég með sjónvarp, með svona 300 kínverskum rásum. Annars reyni ég að vera sem minnst inni í herberginu mínu, það er frekar einmannalegt. Ég á nú samt eftir að gera það aðeins heimilislegra, setja upp nokkrar myndir af fjölskyldu og vinum :)
Miðbær Ningbo hefur allt sem þarf. Mætti reyndar vera minna af vestrænu drasli eins og McDonalds og KFC. Starbucks er líka hérna, ef maður vill fá sér kaffi. Kínverjar drekka ekki kaffi. Ég keypti mér skó á prúttmarkaði í gær, reyndar ótrúlegt að þeir hafi verið til í stærra en 35. Hún vildi selja mér þá á 2000 ísl kr. Ég náði þeim á 600 kr. Geðveikt stolt.
Ég er víst að fara í eitthvað stöðupróf á morgun. Annars byrjar skólinn ekki fyrr en 17. sept. Best að reyna að læra...

Sunday, September 7, 2008

Smá prufa

Þá hefur mér tekist að búa til einhverskonar blog dót. Kann reyndar ekkert á þetta ennþá. Þetta er þriðji dagurinn minn í Shanghai, og líklega sá síðasti. Við ætlum svo til Ningbo í fyrramálið. Ég er alveg að fíla Shanghai, fyrir utan það hvað það er fáránlega mikið af fólki hérna. Og þá sérstaklega kínverjum, þeir eru allstaðar. Furðulegt. Það eru reyndar frekar fáir vesturlandabúar hérna sem ég hef séð, kannski týnast þeir bara innan um alla kínverjanna. Ég er ekki enn búin að venjast því hversu mikið er glápt á mann. Það er rosalegt. Mér líður eins og sirkúsfríki þegar ég labba um göturnar. Spurning hvort maður ætti að fara að rukka fólk fyrir að stara á mann.
Það tala líka frekar fáir ensku hérna, litla kínverskukunáttan kemur þá að góðum notum :)
Núna erum við að fara á jazz klúbb held ég, það verður örugglega næs. Ég skrifa fleiri furðufréttir seinna.