Saturday, September 20, 2008

Prjónameistarinn Katrín

Jæja, nú er ég búin að vera 2 vikur og 2 daga í Kínalandinu. Ég er orðin alveg meistari í því að borða með prjónum. Ég get borðað allt með prjónum, meira að segja hrísgrjón! Ég vona að þið séuð stolt af mér. Þetta er sko ekkert grín. Ég keypti mér svaka flotta tölvuorðabók um daginn. Ef ég sé tákn sem ég skil ekki get ég bara vippað upp tölvuorðabókinni og teiknað táknið inn og fengið þýðingu on the spot. Ekkert smá skemmtilegt tæki. Svo eru líka skemmtilegir leikir í henni, það skemmir ekki fyrir :) Fyrsta vikan af skólanum er búin. Mér líst bara rosalega vel á þetta. Kennararnir tala auðvitað bara kínversku, það er pínu erfitt að skilja þá stundum en þetta kemur. Ég er farin að babla eitthvað sjálf. Allir að spurja hvaðan maður er, þá segi ég hátt og snjalt: Bingdao! Flestir giska fyrst á Aodalija eða Nowei.
Það er ennþá rosalega heitt. Ég forðast að fara út úr húsi í kringum hádegi. Þá er alveg ólíft. Ég vona að það fari nú að kólna. Stundum þráir maður íslenska kuldann og slabbið. Nei varla.
Fyrir utan skólann hafa verið rosalegar heræfingar undanfarna daga. Það er frekar creepy. Allir kínversku háskólanemarnir að læra að marsera í svaka búningum og gaurar í hvítum skirtum með hatt að öskra á þau. Kínverski herinn að undirbúa sig fyrir þriðju heimsstyrjöldina?

3 comments:

Anonymous said...

þú allavega lætur okkur vita ef herinn fer að fara frá ykkur... og helst komast að því hvert hann er að fara :)

Anonymous said...

Vááá ég er gífurlega stollt af þér katrín mín!! það er svo margt hægt að gera með prjónum...prjóna, borða, kannski nota sem vopn í þriðju heimstyrjöldinni...kv ylfa

Katrín said...

jeij! takk takk