Thursday, September 25, 2008

Það er of heitt hérna...

Það er ennþá alveg sjúklega heitt hérna í Ningbo. Held það sé svona í kringum 27 gráður yfir daginn, sem magnast svo upp í rakanum. Einhver laug því að mér að það færi að kólna um miðjan september. Iss. Ég er farin að halda að það verði bara heitara og heitara sem líður á veturinn. Ég skil ekki afhverju maður er að fara í sturtu á morgnanna, um leið og maður kemur út er maður orðinn rennandi af svita. Gaman að því.
Eftir skóla í dag fórum við nokkur niður í bæ á Xingbake (Starbucks). Við lentum í svakalegu þrumuogeldingaveðri og úrhellisrigningu. Það var alveg geggjað! Og auðvitað hlógu kínverjarnir að vitlausu útlendingunum sem voru ekki með regnhlífar.

Saturday, September 20, 2008

Prjónameistarinn Katrín

Jæja, nú er ég búin að vera 2 vikur og 2 daga í Kínalandinu. Ég er orðin alveg meistari í því að borða með prjónum. Ég get borðað allt með prjónum, meira að segja hrísgrjón! Ég vona að þið séuð stolt af mér. Þetta er sko ekkert grín. Ég keypti mér svaka flotta tölvuorðabók um daginn. Ef ég sé tákn sem ég skil ekki get ég bara vippað upp tölvuorðabókinni og teiknað táknið inn og fengið þýðingu on the spot. Ekkert smá skemmtilegt tæki. Svo eru líka skemmtilegir leikir í henni, það skemmir ekki fyrir :) Fyrsta vikan af skólanum er búin. Mér líst bara rosalega vel á þetta. Kennararnir tala auðvitað bara kínversku, það er pínu erfitt að skilja þá stundum en þetta kemur. Ég er farin að babla eitthvað sjálf. Allir að spurja hvaðan maður er, þá segi ég hátt og snjalt: Bingdao! Flestir giska fyrst á Aodalija eða Nowei.
Það er ennþá rosalega heitt. Ég forðast að fara út úr húsi í kringum hádegi. Þá er alveg ólíft. Ég vona að það fari nú að kólna. Stundum þráir maður íslenska kuldann og slabbið. Nei varla.
Fyrir utan skólann hafa verið rosalegar heræfingar undanfarna daga. Það er frekar creepy. Allir kínversku háskólanemarnir að læra að marsera í svaka búningum og gaurar í hvítum skirtum með hatt að öskra á þau. Kínverski herinn að undirbúa sig fyrir þriðju heimsstyrjöldina?

Friday, September 19, 2008

Uppgötvun

Loksins hef ég fattað afhverju kínverjar eru skáeygðir. Það er af því að það notar enginn sólgleraugu.

Monday, September 15, 2008

Djöf. Moskító

Það var ráðist á mig í nótt. Það er búið að bíta vinstri fótinn minn í hakk. Það er greinilegt að moskító flugurnar hafa haldið partý í herberginu mínu. Mig klæjar svo mikið að ég er alveg að pæla í því að láta taka löppina af. ok kannski ekki alveg.
Annars er skólinn loksins að byrja á morgun, við erum flest að fara í class B, sem hentar vel fyrir fólk á öðru ári í kínversku. Svo er viku frí í skólanum núna í lok september, þegar hann er nýbyrjaður... Furðulegt. Kannski maður kíki þá til Shanghai. Skólagjöldin hérna eru 80.000 kr. Vonandi er það ekki bara fyrir aðra önnina. Herbergisleigan er um það bil 20.000 á mánuði. En sem betur fer kostar maturinn sama og ekkert.

Ég hef tekið eftir því að kínverskar konur raka sig ekki undir höndunum. Það þykir víst fallegt að vera loðinn.

Thursday, September 11, 2008

Hérna er símanúmerið mitt í Kína: 0086 15990205091

Ningbo

Núna er ég búin að vera 3 daga í nýju heimaborg minni, Ningbo. Við tókum rútu frá Shanghai, tók um 2,5 klst og var einstaklega súrefnislaus. En ég fékk að fara yfir stærstu brú í heimi! Sumir segja víst að Ningbo sé fallegasta borg Kína. Ég hef nú ekki séð mikið af henni enn, en það sem ég hef séð lítur bara vel út. Háskólinn sem við erum í er frekar langt frá miðbænum. Til að komast niður í bæ þarf maður að leggja á sig þrönga, súrefnislausa og mjög heita strætóferð í svona tuttugu mínútur. Strætóarnir eru alltaf frekar troðnir, en síðasta ferðin á kvöldin er víst verst, þegar þeir troða bara endalaust inn í strætóinn. Þetta á nú eflaust eftir að lagast þegar þessi hiti fer að fara. Það er búið að vera alveg gífurlega heitt undanfarna daga. Rakinn er líka svo mikill, sem ég Íslendingurinn á erfitt með að venjast. Þá er gott að hafa herbergi með svaka loftkælingu :)
Það þykir voða fínt hjá Kínverjum að vera hvítur. Þess vegna höfum við átt í erfiðleikum með að finna rakakrem og snirtivörur án einhverskonar hvítunarefna. Það þykir líka einstaklega hallæris legt að vera í sólbaði. Ég meina afhverju mundi maður vilja skemma svona fallega hvíta húð með sólinni?
Við gistum öll á hóteli og herbergið mitt er bara rosa fínt. Ég er eiginlega með of mikið af húsgögnum. Svo er ég með sjónvarp, með svona 300 kínverskum rásum. Annars reyni ég að vera sem minnst inni í herberginu mínu, það er frekar einmannalegt. Ég á nú samt eftir að gera það aðeins heimilislegra, setja upp nokkrar myndir af fjölskyldu og vinum :)
Miðbær Ningbo hefur allt sem þarf. Mætti reyndar vera minna af vestrænu drasli eins og McDonalds og KFC. Starbucks er líka hérna, ef maður vill fá sér kaffi. Kínverjar drekka ekki kaffi. Ég keypti mér skó á prúttmarkaði í gær, reyndar ótrúlegt að þeir hafi verið til í stærra en 35. Hún vildi selja mér þá á 2000 ísl kr. Ég náði þeim á 600 kr. Geðveikt stolt.
Ég er víst að fara í eitthvað stöðupróf á morgun. Annars byrjar skólinn ekki fyrr en 17. sept. Best að reyna að læra...

Sunday, September 7, 2008

Smá prufa

Þá hefur mér tekist að búa til einhverskonar blog dót. Kann reyndar ekkert á þetta ennþá. Þetta er þriðji dagurinn minn í Shanghai, og líklega sá síðasti. Við ætlum svo til Ningbo í fyrramálið. Ég er alveg að fíla Shanghai, fyrir utan það hvað það er fáránlega mikið af fólki hérna. Og þá sérstaklega kínverjum, þeir eru allstaðar. Furðulegt. Það eru reyndar frekar fáir vesturlandabúar hérna sem ég hef séð, kannski týnast þeir bara innan um alla kínverjanna. Ég er ekki enn búin að venjast því hversu mikið er glápt á mann. Það er rosalegt. Mér líður eins og sirkúsfríki þegar ég labba um göturnar. Spurning hvort maður ætti að fara að rukka fólk fyrir að stara á mann.
Það tala líka frekar fáir ensku hérna, litla kínverskukunáttan kemur þá að góðum notum :)
Núna erum við að fara á jazz klúbb held ég, það verður örugglega næs. Ég skrifa fleiri furðufréttir seinna.