Eftir skóla í dag fórum við nokkur niður í bæ á Xingbake (Starbucks). Við lentum í svakalegu þrumuogeldingaveðri og úrhellisrigningu. Það var alveg geggjað! Og auðvitað hlógu kínverjarnir að vitlausu útlendingunum sem voru ekki með regnhlífar.
Thursday, September 25, 2008
Það er of heitt hérna...
Það er ennþá alveg sjúklega heitt hérna í Ningbo. Held það sé svona í kringum 27 gráður yfir daginn, sem magnast svo upp í rakanum. Einhver laug því að mér að það færi að kólna um miðjan september. Iss. Ég er farin að halda að það verði bara heitara og heitara sem líður á veturinn. Ég skil ekki afhverju maður er að fara í sturtu á morgnanna, um leið og maður kemur út er maður orðinn rennandi af svita. Gaman að því.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Sturtur eru ofmetin fyrirbæri... Rakinn er alveg nóg fyrir okkur íslendingana !!!
Þú ert of heit hérna
Bjarki segir:
27 gráður? Já sæl, það er bara búið að snjóa hér heima! :P
Smá pæling. Hvernig er fólk að taka þessu með kínverska mjólkurskandalinn þarna úti? Allir að flýja mjólkina eða er lítið verað að spá í þessu?
þeir eru sko ekkert að pæla í þessu. as far as I can tell. þetta er kína. allur maturinn er meira og minna eitraður.
Post a Comment