Þessa dagana er ég að ná mér eftir stanslaust party síðustu 2 vikur. Við byrjuðum á því að fara í kínverskt brúðkaup hjá vinafólki. Það var ótrúlega spes. Það var haldið í svaka flottum og hallærislega skreyttum sal. Allt í blöðrum og sápukúlum. Þetta var eins og einhver sýning frekar en brúðkaup. Þegar brúðhjónin gengu upp á svið var lagið O Fortuna spilað undir. Svona eins og eitthvað hræðilegt væri að fara að gerast. Svo voru allskonar misskemmtileg kínversk popplög spiluð. Við fengum fullt af góðum mat og áfengi og ókeypis gistingu á hóteli. Það er mjög fínt að hafa útlendinga sem gesti í brúðkaupinu sínu, sérstaklega ef þeir fara uppá svið og syngja framandi lag eins og Krummi svaf í klettagjá. Við vorum hrókur alls fagnaðar og allir vildu skála með okkur. Og þegar Kínverjar skála þá er það alltaf skál í botn. Ég skil alltaf betur og betur afhverju bjórinn er bara 3%. Eftir brúðkaupið fórum við svo á KTV (karaoke). Ég lofaði sjálfri mér að fara aldrei nokkurn tíma í karaoke, en það var alveg ótrúlega skemmtilegt. Kannski hafði áfengið eitthvað að segja. Við vorum öll meira og minna á skallanum. Daginn eftir fórum við svo til Shanghai þar sem við tókum svaka afmælis-djamm helgi. Fórum líka í langþráða IKEA ferð til að kaupa piparkökur og kjötbollur. En akkúrat þá þurfti endilega að berast sprengjuhótun og það þurfti að rýma alla fjandans búðina og við gátum ekkert keypt ☹ Svo fannst auðvitað engin sprengja. En það hefði verið svalt hefðum við rétt sloppið frá sprengjuárás. Ég er að pæla í að segja öllum það bara. Ég rétt slapp frá hryðjuverkaárás í IKEA. Hversu töff er það?
Strax eftir Shanghai tóku við strangar söng æfingar (alveg 4 klukkutímar) fyrir hæfileikakeppni erlendra nema í skólanum, haldin á Þorláksmessu. Við sungum Beijing huanying ni sem er án efa erfiðasta kínverska lag í heimi. Við vorum í svaka flottum traditional kínverskum klæðnaði og slógum í gegn með falska englasöngnum okkar. Lentum í öðru sæti! Til að halda uppá það var auðvitað farið í bæinn og keyptur bjór fyrir öll þessi 200 yuan sem við unnum.
Á Aðfangadag, Jóladag og annan í jólum fórum við voða fínt út að borða og lifðum hátt, líkt og það væri enginn morgundagur. Samt kom eiginlega alltaf morgundagur. Og þá var maður ekki alltaf jafn hress eftir alla gleðina kvöldið áður. En þá var bara að drífa sig í sturtu og aftur út! ☺ Jólin hafa semsagt einkennst af mikilli gleði hjá okkur. Við meira að segja skrópuðum í skólann. Ekki segja neinum. Í næstu viku eru prófin. Þau verða eitthvað skrautleg held ég. Sérstaklega ef við förum til Shanghai aftur yfir áramótin, eins og pælingin er í dag. Það yrði æðislegt að eyða áramótunum á eftstu hæð í flottasta turninum í Shanghai ☺
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Takk fyrir jólakortið (var að koma), vona að þú sért búin að fá frá okkur :).
kv
Anna M
Post a Comment