Monday, January 12, 2009

Gleðilegt nýtt ár

Þá er ég loksins búin í prófunum! Svaka prófatörn, alveg 2 heilir dagar af prófum. Sem ég auk þess lærði fyrir alveg í nokkra daga sko. Ég fékk svo einkunnirnar í dag, glæsilegar alveg hreint, með yfir 8 í öllu :) Kennararnir hafa verið vel gjafmildir. Eða ég bara svona hrikalega klár. Já örugglega það. Ég skrifaði meira að segja 300 orða ritgerð um 春节 (Spring Festival), kínversku áramótin. Geri aðrir betur.
Ég skrapp til Shanghai yfir áramótin með tveimur vinum mínum. Það var æðislegt! Fórum fyrst út að borða á svaka fínan japanskan veitingastað, svo fórum við á Bar Rouge, sem er á efstu hæð með útsýni yfir allt Pudong svæðið (með öllum skýjakljúfunum). Þar hittum við fleiri vini okkar. Þegar áramótin komu voru allir úti á svölum með kampavín, svo var niðurtalning og flugeldar og allt crazy. Það kostaði samt annan handlegginn að komast inn, en það var algjörlega þess virði. Daginn eftir var það svo rúta heim og beint í lærdóm. Það var ein hress rúta.
Núna er ég komin í 6 vikna ný-árs frí. Kínverska nýja árið er 26. janúar, þá lýkur ári rottunnar og ár uxans hefst, sem er einmitt mitt ár. Þeir segja að á manns eigin ári verði maður að klæðast einhverju rauðu á hverjum degi. Annað boðar ógæfu. Best að byrgja sig upp af rauðum fötum. Nú fer að koma að því að allir Kínverjar drífi sig heim til að halda uppá nýja árið með fjölskyldunni. Og það eru alveg nokkrir Kínverjar hérna, þannig maður getur ímyndað sér hvernig örtröðin verður dagana rétt fyrir áramótin. Þetta verður víst geðveiki. Ég ætla bara að halda mig heima fram yfir 26. svo ég verði ekki troðin niður.

3 comments:

Anonymous said...

gleðilegt nýtt ár :) Fékkstu jólakortið frá mér og guffu? Vonandi sendi ég það á réttan stað :p

Kv. Ívar og Guffa

Anonymous said...

Hva... er ekkert meira að ske þarna í kínalandinu?
Farðu vel með þig
kv
Anna M

Anonymous said...

Þetta gengur ekki stelpa. Ekki segja mér að ekkert hafi gerst síðan í byrjun janúar. Skelltu þér nú í ritgírinn gella og komdu þessu frá þér.