Thursday, November 6, 2008

Kínverji í 2 mánuði

Jæja nú er ég búin að vera Kínverji í 2 mánuði. Það gengur bara alveg ágætlega. Það er alltaf nóg að gera hjá mér. Ég var í prófi í dag. Það hefði alveg mátt ganga betur... Það eru bara svo miklu skemmtilegri hlutir til en að læra. Svo ætlum við til Shanghai núna um helgina :) Kíkja aðeins í HM og svona. Ikea líka. Nauðsynlegt. Annars er enn voða heitt hérna. Ég held þeir séu hættir við veturinn. Í dag voru alveg um 22 gráður. Ég er alveg sátt við það, nema bara moskító flugurnar sem ætla aldrei að drullast til að drepast. Það er enn verið að bíta mig. Og ég prófaði að bíta þær bara til baka en það virkar ekki. Ég fór í sólbað um daginn. Það hefur aldrei verið glápt eins mikið á mig og þá. Allir Kínverjarnir að passa sig að halda sig í skugganum, svo ég að láta sólina skína á mig eins og einhver bjáni. Annars er ég bara orðin nokkuð vön Kínalífi. Það er alltaf verið að spurja mann sem útlending, hvort maður sé orðinn vanur lífinu í Kína. Ég er hætt að taka eftir hóruhúsum, það er kannski ágætis vísbending að ég sé orðin vön lífinu hérna. Það eru hóruhús útum allt! Alla leiðina frá háskólasvæðinu niður í bæ keyri ég framhjá hóruhúsum. Og það tekur alveg hálftíma að fara niður í bæ. Það hlýtur að vera rosaleg eftirspurn. Svo er ég líka orðin vön því að Kínverjar nota ekki klósett, heldur bara svona holur í jörðinni sem maður á að pissa í. Já það er frekar ógeðslegt. En á þeim fáu stöðum sem hafa klósett, eins og við þekkjum þau, þá vita Kínverjarnir ekki hvað þeir eiga að gera og standa þess vegna bara uppi á klósettsetunni og beygja sig niður. Dont ask. Ég skil þetta ekki.
Ég er hins vegar ekki enn vön stólunum hérna. Þeir eru voða hrifnir af kollum. Ég finn enga stóla með baki og er þess vegna að drepast í bakinu. Meira að segja í skólanum þarf maður að sitja á kolli og líka á flestum veitingastöðum sem ég fer á.  Það er frekar mjög óþægilegt já. Rúmin eru líka eins og grjót. En það er víst venjan hérna. Maður venst því líka strax.

5 comments:

Anonymous said...

Stupendous gella. Góða skemmtun.

Anonymous said...

Kínverjar eru skrýtnir, hvað getur maður sagt annað :)

Kv. Ívar Örn

Anonymous said...

Hóruhús segiru? Ætli þeim vanti einn hvítan strák með smá utan á sér? Mig vantar smá aukapening :P

Algjör snilld að sjá þig í Stúdentablaðinu! :) "your economy, BOOM!" :D

Kveðjur frá Íslandi
Bjarki

p.s.
þér og Elvari er boðið í nafnaveislu á föstudaginn hjá Ninju. Helduru að þú komist? ;) hehehehehe. djóóóók.

Anonymous said...

sjæse kebab

AnnaM

Anonymous said...

vá þú verður orðin hörð þegar þú kemur til baka í lúxusinn, getur kennt okkur kínversku leiðina þegar við horfum fram á gjaldþrot...economy boom, baaamm kollar á kaffihúsum, bammm hóruhús á hverfisgötunni, bamm aids...