Fyrsta spurningin sem ég fæ þegar ég segist vera frá Íslandi er hvort það sé ekki rosalega kalt. Enda segir það sig sjálft. Það hlýtur að vera rosa kalt á Íslandi. Þegar ég segi þeim að það sé mun kaldara í Kína verða þeir voða hissa. Sumir halda líka að við séum eskimóar. Ég reyni að leiðrétta það eins og ég get. En stundum er skemmtilegra að segjast bara vera eskimói sem býr við stöðuga hættu á að vera étinn af the Killer-Penguins. Næsta spurning sem ég fæ er hvort ég hafi það ekki rosalega slæmt núna þegar heimalandið mitt er að fara á hausinn. Þeim finnst að Ísland ætti bara að taka upp kínverska Yuan-ið. Það er nú svo stöðugt. Þetta er svona um það bil það eina sem margir hérna vita um Ísland. Þar er kalt og efnahagurinn í skralli.
Það er enn verið að biðja okkur um að sitja fyrir á myndum með einhverjum random Kínverjum sem við hittum úti á götu. Það er alveg ótrúlegt. Við erum komin í nokkuð mörg kínversk fjölskyldualbúmin.
Ég fór í pósthúsið í gær til að senda pakka heim. Það var ein kona að vinna og brjálað að gera. Ég stóð í svona korter beint fyrir framan konuna en hún gjörsamlega ignoraði mig. Kínverjarnir ruddust bara fram fyrir mig og voru með frekju, eins og þeir gera. Sumt afgreiðslufólk reynir eins og það getur til að þurfa ekki að afgreiða útlendinga. Þau gera bara ráð fyrir því að maður tali ekki kínversku og þau kunna aldrei ensku. Alveg óþolandi. Loksins hjálpaði ein stelpa mér við að fá afgreiðslu. Enska nafnið hennar er Princess. Ensku nöfnin sem þau velja sér hérna eru alveg fáránlega fyndin. Það er mjög vinsælt að heita Apple eða Orange. Líka Prince eða Princess. Ég heyrði um einn sem heitir Bandit, einn Tiger og með mér í bekk er Dollar-Man.
5 comments:
Kínverjar eru skrítnir, það er ekki hægt að neita því.
Ef þú hittir einhvern sem kallar sig Nightshadow passaðu þig á honum, he's up to no good.
Ég væri til í að kynnast Dollar-Man, hljómar áhugaverður karakter.
Ohh no you wouldnt! Dollar-man er ein minnst áhugaverðasta manneskja sem nokkur okkar hefur á ævinni hitt. ýmindaðu þér mest anoying persónu sem þú veist um og margfaldaðu með 644537049845. þá ertu kannski kominn uppí hálfan Doller-man. allur bekkurinn hatar hann. ef einhver tekur svona high school shooting einhvern tíma þá er hann fyrsti maðurinn sem verður drepinn. hann er svona obnoxious.
Dollar-Man? Hahaha! Hljómar eins og nafn á porno-wrestling gæja.
-Bjarki
Dollar-Man er augljóslega misskildur karakter. Það er ekkert ólíklegt að ef einhver verður með high school shooting verður það hann sem skýtur. Og þá er örugglega gott að vera vinur hans.
Ef ég væri í kína þá mundi ég kalla mig mr. weekend
Kv. Helgi
Post a Comment