Monday, October 6, 2008

Kaffi...

Ég hef þurft að drekka instant kaffi núna í 5 vikur. Æðislegt instant kaffi frá nestle með innbyggðum sykri og mjólkurdufti sem veldur nýrnasteinum. Ég fann ekkert svart kaffi fyrst en núna hef ég fundið það til allrar hamingju. Það er samt frekar óheppilegt að vera með hraðsuðuketil sem hefur engan stoppara, ef ég fylgist ekki með honum gufar allt vatnið mitt upp.
Þegar vel liggur á mér skelli ég mér í strætóferð niður í bæ og fær mér alvöru kaffi á starbucks. Fyrir einn latte á starbucks get ég keypt mér mat fyrir heila viku. Maturinn hérna er alveg æði og kostar ekki neitt. Reyndar er allt að verða dýrara og dýrara þökk sé hríðfallandi gengi krónunnar. Ég er núna að borga svona 250 krónur fyrir máltíð sem ég borgaði 200 krónur fyrir í síðasta mánuði. Rosalegt. Eins gott ég ákvað að fara í skiptinám til Kína en ekki til dæmis Danmerkur...
Ég bíð spennt eftir að sjá hvort ég fái einhvern hræðilegan sjúkdóm af öllum þessum kínverska mat sem virðist vera meira og minna eitraður. Það nýjasta er víst súkkulaðið :( 

1 comment:

Anonymous said...

Ég er ekkert viss um að kaffið á hlöðunni sé eitthvað heilnæmara en þetta melamín fyllta kaffisull sem þú ert að drekka þarna.

kv. Elvar